16júní
Þá erum við búin að vera á landinu í tíu daga í stórgóðu yfirlæti foreldra okkar. Um það er lítið annað að segja en: Yndischlegt!
Dagskráin næstu daga er í grófum dráttum þessi:
Miðvikudagur: Afmæli hjá Arnþóri og Þórhildi og grill með séra Arnari. Svo má auðvitað ekki gleyma Nonna Sig.
Fimmtudagur: Afmæli hjá tengdamömmu.
Föstudagur: Hitta Huldu og Eggert og svo Tappi um kvöldið.
Laugardagur: Endurfundir ´94 árgangsins úr Hrafnagilsskóla.
Sunnudagur: Veiði í Árbót.
Mánudagur: Veiði í Árbót.
Áhugaverð lesning.
05júní
Við leggjum í hann til Íslands kl. 10:00 að staðartíma. Farið verður með skutlu innanbæjar að rútubílastöð. Þaðan verðum við keyrð til St. Louis. Svo fljúgum við til Boston. Þaðan fljúgum við til Keflavíkur og er áætluð lending um 7:00 að morgni laugardagsins 6. júní.
Við hlökkum mikið til að hitta vini og vandamenn. Allir biðja að heilsa!
02júní
Síðastliðinn laugardag steig ég næstum því berfættur á RISASTÓRA könguló sem hafði komið sér vel fyrir á pallinum okkar. Seinna frétti ég að af lýsingunni að dæma væri þetta líklegast „wolf-spider". Gaman að því.
Talandi um dýr að þá er það annað hvort pokarotta, þvottabjörn eða moldvarpa sem hefur komið síðustu nætur og tætt í sig ruslapokana sem ég setti út um helgina.
Jakob Máni er búinn að eignast nýjan vin hér í götunni. Sá heitir Bryce og er á sjöunda aldursári.
Um helgina þræddum við bílskúrssölur hér í hverfinu, en það er viss árviss viðburður hér að hverfisbúar haldi slíkar sölur. Í leiðinni hittum við fullt af nágrönnum okkar í fyrsta skipti.
Í gær fengum við Brekhus-hjónin í heimsókn og borðuðum við Tacos og vatnsdeigsbollur og fórum í stórskemmtilegt spil, sem heitir „Hamster Rolle" upp á þýsku. Geswundlicht!
Í kvöld kom svo Kathleen í heimsókn í mat (lasagna). Eftir matinn horfðum við á myndina „Stepbrothers", sem er mynd sem allir verða að sjá.
Hitinn hér er svona á milli 25 til 30+ gráður upp á hvern dag. Erfitt líf. Ég man ekki hvenær ég var síðast í síðbuxum.
29maí
Spennan fyrir Íslandsför stigmagnast með hverjum deginum. Ekki hefur það slegið á spenninginn að við höfum tvisvar sinnum grillað íslenskar pylsur í vikunni. Í fyrra skiptið borðuðum við „s´mores" í eftirrétt og í seinna skiptið grilluðum við banana með súkkulaði. Já, aðhaldið er alveg að gera út af við okkur!
Um síðustu helgi fórum við til St. Louis. Við fórum að vanda í dýragarðinn og svo var haldið í „City Museum" sem er í einu orði sagt ótrúlegt. Það er ekki spurning að við eigum eftir að sækja þetta „safn" oftar heim.
Í kvöld, fimmtudag, fengum við Andrew Bisto og Tiffany og Roslyn og Matt í heimsókn. Borðuðum við pítsu og „Amish friendship bread" og spiluðum Hollywood-Buzz. Mjög ánægjuleg kvöldstund. Þess má einnig geta að Roslyn og Matt ætla að passa gullfiskana okkar í sumar. Gott mál!
í gær, miðvikudag, borðuðum við með Kathleen Krueger á India House, sem er einn uppáhalds veitingastaðurinn okkar.
Á sunnudaginn koma Wayne og Rachel Brekhus í matar- og spilakvöld.
Um þessar mundir er Ási bróðir á námskeiði í New York og verður hann þar næstu fjórar vikurnar.
Sjálfur hef ég tekið upp á því fara út að hlaupa nokkrum sinnum í viku. Þetta hef ég sjaldnast gert ótilneyddur þrátt fyrir að vera nokkuð góður í að hlaupa lengri vegalengdir. Þegar ég var yngri fannst mér vanta ákveðinn tilgang í það að hlaupa. Ég meina, hvar er karfan? Svo má auðvitað deila um hversu mikinn tilgang það hefur að elta og skjóta bolta í körfu? Hvað um það, mér líkar það svona sérdeilis prýðilega að hlaupa úti og tel að þetta sé komið til að vera.
E.S. Mæli eindregið með myndinni The Wrestler.
17maí
Útskriftin var síðastliðinn föstudag þannig að masterinn er formlega í höfn. Hrafnhildur kom mér á óvart með óvæntri útskriftargjöf, veiði á 5. svæði í Eyjafjarðará og forláta veiðihatti. Þá fékk ég veglega gjöf frá tengdó, flugur frá Lindu og svo bíður víst gjöf frá mömmu og pabba eftir mér þegar ég kem á Klakann. Þakka ykkur kærleg fyrir hugulsemina. Takk, takk!
Linda Rós kom nánast beint í útskriftarathöfnina sem stóð langt fram á kvöld. Hún náði þó að halda sér vakandi þrátt fyrir ferðaþreytuna. Jakob Máni sá svo um að vekja hana kl. 7:30 daginn eftir með orðunum: "Ertu vakandi?".
Þess má geta að Linda kom með harðfisk, kæfu og kavíar. Það er ekki ofsögum sagt að við höfum stokkið til þegar Linda tók upp góðgætið. Hrafnhildur henti sér á harðfiskinn, ég fór beint í að smyrja brauð með kæfu og Jakob byrjaði að sjúga kavíarinn beint úr túbunni!
Í gær, laugardag, var smá kaffi og kom Kathleen í heimsókn.
Stefnan er tekin á St. Louis um næstu helgi. Ætlunin er að fara á safn og svo hugsanlega í dýragarðinn.
Ási bróðir átti 29 ára afmæli síðastliðinn fimmtudag, 14. maí. Til hamingju aftur með daginn!!! Von bráðar verður þú kominn í tölu fullorðinna.
12maí
Það er allt að gerast þessa dagana!
Það sem ber helst að nefna er að Oddur Atli byrjaði að skríða í fyrrinótt!!!
Ég er búinn í skólanum og aðstoðarkennslunni í bili. Á föstudaginn er svo útskriftin. Þá er mastersgráðan formlega í höfn.
Linda, vinkona, kemur á föstudaginn og verður hjá okkur í þrjár vikur, eða allt þar til við förum til Íslands. Áætluð koma til Íslands er 6. júní.
Sumarvinna mín felst í tölfræðigreiningu og fleiru fyrir Jafnréttisstofu. Hrafnhildur mun vinna á Akureyrarstofu.
Á laugardaginn er svo stefnan tekin á Chuck E Cheese.
Við fórum í skemmtilegt matarboð til John og Jeanne Galliher síðastliðið sunnudagskvöld ( „Mother's Day"). Ásamt okkur mætt Ozad og fjölskylda hans, en Ozad framhaldsnemi frá Tadsjikistan.
Um helgina sá ég mús í bílskúrnum okkar. Við náðum að öllum líkindum að hræða hana í burtu. Að minnsta kosti lítur hún ekki við músagildrunni minni.
Talandi um dýr að þá steig ég næstum því á stærðar frosk um daginn þegar ég fór út með ruslið. Þá höfum við séð slatta af grænum engisprettum á lóðinni okkar. Loks, hafa einhvers konar vespur reynt að byggja bú undir þakskegginu okkar. Hef ég hingað til náð að „skola" þeim í burtu.
E.S. Kíkið endilega inn á www.barnanet.is/reykjalin. Þar er að finna fullt af myndum og myndböndum af Oddi Atla og Jakobi Mána. Munið að kvitta.
03maí
Neil Young tónleikarnir voru í einu orði sagt STÓRKOSTLEGIR! Sjálfur stóð ég beint fyrir framan sviðið í u.þ.b. átta metra fjarlægð. Fyrir vikið fékk ég rokkið beint í æð og naut þess í botn. Þá fékk ég einnig, óumbeðið, eitthvað af óbeinum „gras-reyk" sem nokkrir tónleikagestir voru svo örlátir að deila með sér. Þetta var ekki ósvipað og þegar maður gekk um Kristjaníu í „den".
Það leið yfir eina konu sem stóð við hliðina á mér á tónleikunum og þurfti að bera hana út. Hún annað hvort gekk of hratt um gleðinnar dyr og/eða gleymdi að anda að sér súrefni. Þá hef ég aldrei séð jafn mikið af gömlum hippum samankomnum á einum stað. Það skýrir eflaust af hverju stemningin var svona yndisleg.
Masters-vörnin hjá mér síðastliðinn þriðjudag gekk mjög vel.
Það var mjög gaman í heimboðinu sem við fórum í á föstudaginn var. Maturinn var frábær, sér í lagi sá indverski.
Við erum formlega orðin grillóð. Allt sem steini er léttara er grillað „med det samme".
Oddur Atli treður í litlu körfuna sína sem mest hann má. Þá stækkar hann svo hratt að með þessu áframhaldi verðum við kominn með landsliðsmiðherja í körfuboltanum eftir 20 ár.
Jakob Máni stendur sig eins og hetja í skólanum. Alveg ótrúlega listrænn og skapandi.
Hrafnhildur fer á kostum sem endranær.
E.S. Hér má hlusta á snilling syngja snilldarlag eftir snillinga.
25apríl
Síðustu dagar hafa verið sérlega viðburðaríkir hjá Oddi Atla. Fyrir það fyrsta þá byrjaði hann að segja „mama", þá teygir hann reglulega úr sér þegar hann er spurður hversu stór hann er og loks klappar hann fyrir sjálfum sér. Allt að gerast!
Í gær skilaði ég inn mastersritgerðinni í til nefndarinnar minnar. Á þriðjudaginn er svo vörnin.
Þessi helgi verður notuð í afslöppun. Ég þarf bara að lesa eina bók fyrir mánudaginn. Stefnan er tekin á nestisferð í Stephens Park á morgun, sunnudag.
Á fimmtudaginn kemur fer ég svo til Kansas City á tónleika með Neil Young!!!
Á föstudaginn er svo heimboð til Amit Prasad og Sirupa Prasad, en þau eru indverskir kennarar við félagsfræðideildina.
E.S. Drífið ykkur á kjörstað og kjósið eftir eigin sannfæringu.
22apríl
Í gær renndum við til Kansas City og kusum til Alþingiskosninga. Ferðin tók í það heila níu klukkutíma. Við gerðum tilraun til þess að fara sl. sunnudag en þá festumst við í tvo tíma í umferðarteppu. Í dag póstlagði ég svo atkvæðin góðu og borgaði morðfjár fyrir að fá atkvæðin í hús fyrir kjördag.
Hér er svo mjög áhugaverð lesning: Heimur hátekjuhópanna, fræðigrein eftir Arnald Sölva Kristjánsson og Stefán Ólafsson.
27mars
Síðasta vika er svo sannarlega búin að vera viðburðarrík og skemmtileg:
Oddur Atli eignaðist sína fyrstu körfu og líkar vel.
Við náðum loks að lækka útikörfuna og Jakob Máni er þegar búinn að skora sínar fyrstu körfur. Auk þessa sýnir hann flotta takta með boltann og er gott ef ekki með betri boltameðferð en pabbi sinn (ekki sérgrein á þeim bænum).
Á mánudaginn fóru allir nema ég útsölumarkaði í „Lake of the Ozarks", sem er svaðaleg sumarparadís með a.m.k. fjórtán golfvöllum, svo eitthvað sé nefnt.
Á þriðjudaginn fórum við og skoðuðum stærsta tré í Missouri sem er í u.þ.b. 20 mínútna fjarlægð frá Columbia. Umrætt tré er auk þess eitt stærsta tré af sinni tegund í öllum Bandaríkjunum. Á leiðinni stoppuðum við á lítt framsæknum kúrekabar, að nafni Lucy´s, þar sem a.m.k. fimm myndir af John Wayne prýddu veggi. Inni mátti reykja og nýttu fastagestir sér það óspart. Jakob Máni og pabbi fengu sér hamborgara að hætti hússins en ég gat ekki hugsað mér að borða í reykjarsvælunni. Pabbi varð auk þess svo uppnuminn af „cowboy-stílnum" sem lá yfir öllu að hann byrjaði að dansa einhverskonar samblöndu af línudansi og „Riverdance". Bjóst ég fastlega við því að fastagestir þeir sem sólbrenndastir voru á hnakkanum myndu leggja í karl föður minn en svo var ekki. Fékk pabbi m.a.s. að taka myndir af öllum herlegheitunum.
Þess má til gamans geta að téður kúrekabar er í bænum McBaine þar sem 17 manns búa. Þessi bær heldur m.a.s. árlega „Testicle Festival" þar sem er djammað og djúsað auk þess sem gestir leggja sér til munns nautseistu! Svo er fólk að fúlsa við súrsuðum hrútspungum???
Á miðvikudaginn fórum við til St. Louis og eyddum fimm klukkutímum í dýragarðinum, sem þykir sá besti í Bandaríkjunum. Um kvöldið fórum við svo út að borða á Fitz´s sem er ekta amerískur veitingastaður í anda St. Louis. Staður þessi bruggar m.a.s. sinn eigin „rootbeer" (rótarbjór), sem maður heyrir svo mikið talað um í bandarísku sjónvarpsefni. Þess má til gamans geta að þessi bjór er ekkert áfengur og bragðast eins og hóstasaft. Mæli ekki með þessu til drykkjar en endilega smakkið þessa ólyfjan ef þið fáið tækifæri til þess.
Í gær fórum ég og Hrafnhildur á stefnumót í fyrsta skipti í sjö mánuði. Við fórum út að borða á mexíkóskan veitingastað, sem er rétt hjá hverfinu okkar og fórum svo í bíó á „I love you, man". Þetta var auk þess í fyrsta skipti sem Oddur Atli var í pössun, en hann er 8 og ½ mánaða.
Fyrr um daginn keyptum við ógrynni af kjöti af farandsölumönnum. Síðasta kvöldmáltíð foreldra minna í kvöld verður frumraun kjötfjallsins og ríða „Ribeye-in" á vaðið í „nautakjöt í rækjusósu ala Hrafnhildur".
Eftir kjötkaupin fórum ég, Jakob Máni, amma og afi á Going Bonkers, sem er tækja- og leikjasalur fyrir börn. Það er ekki á aðra hallað að segja að afi hafi skemmt sér best, en hann eyddi svo til öllum spilapeningunum í leik þar sem maður situr mótorhjól .
Í dag verður farið í síðasta skiptið með mömmu og pabba í WalMart. Þá á að koma við í Home Depot, pípubúðinni, bókasölu háskólans og síðast en ekki síst „Candy Factory".
Ekki man ég eftir meiru í augnablikinu.